Mælingar hafsbotnsins varpa ljósi á skipsflakið HMS Rajputana
Kortlagning hafsbotnsins: Nýjar mælingar varpa ljósi á kunnuglegt skipsflak:
Á 400 metra dýpi ~ 80 sjómílur vestur af Snæfellsnesi liggur á hafsbotninum skip skrokkur 155 metra langur og 20 metra breiður. Það er talið vera stefnið rís 13 metra frá hafsbotninum og virðist snúa í vestur á ystu brún plógfar ísaldarjökuls, 330 metra breytt og 12 metra djúpt. Skutur skipsins virðist vera grafinn undir set er skipið því líklega lengra en gögnin sýna. Umhverfis flakið má sjá smá hóla og hæðir sem gæti verið leifar af skipinu sjálfu.
Þrettándi fjölgeislaleiðangur Hafrannsóknastofnunar í átaksverkefninu Kortlagning hafsbotnsins.
Þann 9. apríl sl. hófst þrettándi kortlagningaleiðangur Hafrannsóknastofnunar í átaksverkefninu Kortlagning hafsbotnsins. Á leið leiðangursfólks frá Vestmannaeyjum vestur fyrir Reykjaneshrygg, var hafsbotninn kortlagður á Reykjanesgrunni, Faxabanka og Jökuldjúpi. Þrátt fyrir norð-norðvestan hvassviðri og mikla brælu hefur tekist að safna ágætis dýpismælingum af hafsbotninum, um 5.996 km2 þegar þessi frétt er skrifuð.
Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2024 til 15. mars 2025 verði ekki meiri en 375 tonn.
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2023/2024 verði ekki meiri en 4030 tonn. Er það um 9% lækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2024 en einnig frá árinu á undan. Vísitölur þessara tveggja ára voru svipaðar og vel undir langtíma meðaltali og því lægri en mörg ár þar á undan.