Má búast við makríl í sumar? Málstofa Hafrannsóknastofnunar 2. maí kl. 12.30.
Anna Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun erindi á málstofu Hafrannsóknastofnunar sem ber heitið: Má búast við makríl í sumar? Í fyrirlestrinum verða niðurstöður rannsóknanna settar í samhengi við útbreiðslu makríls síðustu sumur og spá í spilin um hverju má búast við sumarið 2024.
Mælingar hafsbotnsins varpa ljósi á skipsflakið HMS Rajputana
Kortlagning hafsbotnsins: Nýjar mælingar varpa ljósi á kunnuglegt skipsflak:
Á 400 metra dýpi, um það bil 80 sjómílur vestur af Snæfellsnesi liggur skipskrokkur á hafsbotninum sem er 155 metra langur og 20 metra breiður. Staðsetning flaksins er á 64° 57'N, 27° 19'V og það sem er talið vera stefni skipsins rís 13 metra upp frá hafsbotninum og virðist snúa í vestur. Skipið liggur á ystu brún plógfars eftir ísaldarjökul sem er 330 metra breitt og 12 metra djúpt. Skutur skipsins virðist vera grafinn undir set og er skipið því líklega lengra en gögnin sýna. Umhverfis flakið má sjá hóla og hæðir sem gætu verið leifar af skipinu sjálfu.
Þrettándi fjölgeislaleiðangur Hafrannsóknastofnunar í átaksverkefninu Kortlagning hafsbotnsins.
Þann 9. apríl sl. hófst þrettándi kortlagningaleiðangur Hafrannsóknastofnunar í átaksverkefninu Kortlagning hafsbotnsins. Á leið leiðangursfólks frá Vestmannaeyjum vestur fyrir Reykjaneshrygg, var hafsbotninn kortlagður á Reykjanesgrunni, Faxabanka og Jökuldjúpi. Þrátt fyrir norð-norðvestan hvassviðri og mikla brælu hefur tekist að safna ágætis dýpismælingum af hafsbotninum, um 5.996 km2 þegar þessi frétt er skrifuð.
Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2024 til 15. mars 2025 verði ekki meiri en 375 tonn.